Já helgin hefur verið bara askoti góð!!!

Eftir vinnu á
fösdtudaginn kíkti ég til Ingu og saman fórum við til Rósu og Lilju
(stelpur sem hún þekkir). Þær áttu afmæli systurnar en þetta var nú
samt meira eins og bara stelpuparty (fyrir utan tvo stráka

) en
bara kósí og skemmtilegt... Við fengum hellings kræsingar, osta og
kex, með sultu og vínberjum og geggjaða súkkulaðiköku ásamt gnægð
af bjór og hvítvíni

Við kíktum svo öll niðrí bæ á einhvern bar
sem ég hef ekki komið á áður og veit ekki alveg hvar er, en hann er
einhvers staðar í nálægð við Moose. Það hittum við fyrir Dani og
Færeyjing, þeir stoppuðu nú ekki lengi en þegar þeir fóru komu
tveir danskir strákar, einn frá Barcelona og stelpa frá Melborn,
Ástralíu. Við sátum á spjallinu við þau heillengi, hellings fjör.
Þau þekktu einhvern íslenskann strák sem var eitthvað að þvælast í
Þýskalandi en bjó samt í Danmörku og einn af þeim var alltaf að
hringja í hann og láta okkur tala við hann, þar sem við værum nú
íslenskar líka

he he Þegar ég var alveg að drepast úr þreytu
rölti ég á pizzastað sem var bara alveg við hliðiná barnum og fékk
mér bara eina bestu pizzu sem ég hef smakkað, alveg ótrúlega góð,
svo góð að ég bara glaðvaknaði og hélt áfram að sötra bjórinn með
stelpunum og nýju vinum okkar.... Auðvitað var svo farið yfir á
Moose og þegar fjörið var búið þar var förinni heitið heim. Bara
ágætis pöbbarölt þar! Daginn eftir lágum við Ingibjörg bara yfir
video með pizzu og kók og nammi auddað líka

það var nú einu
sinni laugardagur.... Við ákváðum svo að gerast hollar þegar líða
fór á daginn svo að í kvöldmat fengum við okkur smoothie! ha ha,
eitthvað til að vega upp á móti sukkinu. Ekki leið þó á löngu þar
til við tókum aftur í bjórinn og leiðin lá niður á Kongets Nytorv
þar sem við hittum fyrir nokkra vini Ingu, þau Vigdísi, Lorenzo,
Tomaso og fleiri og saman fórum við á Kulørbar, það vill svo til að
hann er við hliðiná Belgíska barnum með úldna sokka bjórinn!

Það
er nebblega þannig á Kulørbar að ef þú kemur kl ellefu þá borgaru
60. dkr til að komast inn og færð bjórglas. Þú getur svo fyllt
endalaust á glasið alveg til eitt um nóttina, eða í tvo tíma

nokkuð flott ekki satt, en það er náttúrulega þannig að ef þú
skilur við glasið er þá er ekki meiri frír bjór fyrir þig! :/ Björn
kom svo til okkar og það var dansað smá og drukkinn meiri bjór! Við
ákváðum samt að fara aðeins fyr heim þar sem kvöldið áður hafði
verið meira en nóg. he he Í dag var svo Ísland-Þýskaland þar sem
strákarnir voru ekki alveg í stuðinu, eða eins og danski lýsirinn
sagði þá voru þeir ekki með hjartað í leiknum.... þeir náðu þó að
minka muninn og töpuðu með 5 stiga mun, það var nú ekki svo slæmt
þar sem á tímabili var munurinn 9 stig. En það er kominn matartími
fyrir mig núna, svo að ég segi bara góða nótt, ég vona að þið hafið
líka haft það gott um helgina, við sjáumst síðar......