For the widows in Paradise, For the Fatherless in Ypsilanti
Wordpress!
<description>Jæja ég nenni þessu ekki lengur!!! ég feta í fótspor siggu bakkusar
og ms. hvorukyn og færi mig um set... eða yfir í wordpress....
slóðin er því orðin www.gullamagg.wordpress.com
The Snowday
danmörku í fyrradag... Það kom eiginlega bara bilur svo að allt
varð hvítt! Þannig er það ennþá í dag og sums staðar snjóar ennþá.
leiðinni í vinnuna. Ég komst með naumindum út fyrir skafli sem sat
fyrir hurðinni.. þurfti sko að nota kraftana;) Eftir að ég var
komin út óð ég svo í átt að strætóskýlinu og þegar ég kom loks
þangað hafði MIKILL snjór komist inn í skóna mína og ég var orðin
blaut í fæturnar! :/ Það voru ennþá nokkrar mín í strætó svo ég
beið bara þolinmóð. Sem betur fer var ekki brjálað veður eins og
kvöldið áður, en það varð samt alltaf kaldara og kaldara eftir því
sem klukkan leið og ekki kom strætó. Ég beið því aðeins lengur....
eða þangað til ég var búin að vera úti í kuldanum í tæpar 40 mín,
en aldrei kom bílinn :( Ég fór því aftur heim þar sem ég hitti
Önnu, hún var þá tilbúin til að fara í vinnuna sína en hafði þá
heldur engan strætó til að taka! Hún kíkti á netið og sá að
helmingurinn af lestunum gengu ekki og meirihluti strætó ekki
heldur ( það er að segja á kaupmannahafnarsvæðinu) Ég sendi því
Henriettu yfirmanni mínum skilaboð um að ég væri föst heima og
vissi ekki alveg hvernig ég ætti að komast í vinnuna. 10 mín seinna
fékk ég svar um að hún væri að koma að sækja mig :) ha ha, hún var
þá búin að sækja Födmu (sem éger að vinna með) og fjölskyldu hennar
og keyra þau í vinnu. Anna fékk far upp á lestarstö- og ég komst
loksins í vinnuna kl 7:30 Má ég benda á það að ég átti að mæta um
tæpum 3 tímum seinna :O Seinna, þegar ég var búin að vinna keyrði
svo Henrietta okkur aftur heim þar sem að strætó hafði ekki gengið
komst alla vega í vinnuna og heim aftur án hjálpar from the Boss!
Konudagurinn mikli :)
<description>Já nú ætla ég sko að segja við allar íslenskar konur... Til
það er nebblilega Fastelavn í dag! Bolludagur og öskudagur
samanlagt... alveg ágætt það :) Allir í hverfinu komu saman á einu
leiksvæðinu sem er hérna hjá okkur og krakkarnir fengu að slá
köttinn úr tunnunni.. reyndar voru það kettirnir í tunnunum þar sem
það voru alveg nokkrar tunnur! :D Allir voru svo auðvitað klæddir
upp í búningar og bara haft gaman. Fullorðna fólkið fékk auðvitað
að vera með, fengu sínar eigin tunnur og svoleiðis murkuðu lífið úr
frænku.. það var nú ekki mér að kenna, hún bókstaflega bakaði þær
bolludaginn, öskudaginn og sérstaklega sprengidaginn! :D (sem ég fæ
Komin á þrítugsaldurinn! :/
Sönderborg hjá Beggu og Stebba og krílunum þeirra. :) Var að passa
í gær þegar þau fóru á þorrablót og ekki nóg með að ég hafi verið
með stelpurnar og Knút heldur gistu tvær aðrar stelpur hérna líka,
þannig að það var nóg að gera hjá mér ;) Begga reyndar leit við til
að gefa Knúti af því að hann vildi ekki sofna en hvarf svo aftur á
það bara þannig í allan dag ;) og fer svo heim á morgun með
mér tíma til að byrja á fyrstu harry potter bókinni, þar sem ég hef
enga lesið og gengur það bara mjög vel :) ætti að vera búin með
Allir puttar, eða bara tveir... þið ráðið
<description>Fingrasetningin....... það vita allir hvað það er, er það ekki?
maður lærir hana í barnaskóla (alla vega flestir) ;) og þannig
skrifar maður á lyklaborð það sem eftir er ævinnar! Mjög eðlilegt
bara, er það ekki..... NEI .... Alla vega virðist það ekki vera
þannig hér í Danmörku! ég vinn við að þrífa í skrifstofuhúsnæði hjá
farsíma fyrirtæki sem kallar sig TDC. Þar vinna allir við tölvur
eins og á flestum skrifstofum og því kom það mér mikið á óvart
þegar ég tók eftir því að nærrum því enginn notar fingrasetninguna,
heldur pikka þau með tveimur puttum á alla stafina, ansi góð í því
samt :) ég er ekkert að segja að það sé eitthvað verri aðferð en
aðrar en þetta kom mér bara að óvörum.... Meira var það nú ekki um
þetta efni, langaði bara að deila þessu með ykkur! :D
Mikið að gera....
<description>Já helgin hefur verið bara askoti góð!!! :D Eftir vinnu á
fösdtudaginn kíkti ég til Ingu og saman fórum við til Rósu og Lilju
(stelpur sem hún þekkir). Þær áttu afmæli systurnar en þetta var nú
samt meira eins og bara stelpuparty (fyrir utan tvo stráka :P) en
bara kósí og skemmtilegt... Við fengum hellings kræsingar, osta og
kex, með sultu og vínberjum og geggjaða súkkulaðiköku ásamt gnægð
af bjór og hvítvíni :P Við kíktum svo öll niðrí bæ á einhvern bar
sem ég hef ekki komið á áður og veit ekki alveg hvar er, en hann er
einhvers staðar í nálægð við Moose. Það hittum við fyrir Dani og
Færeyjing, þeir stoppuðu nú ekki lengi en þegar þeir fóru komu
tveir danskir strákar, einn frá Barcelona og stelpa frá Melborn,
Ástralíu. Við sátum á spjallinu við þau heillengi, hellings fjör.
Þau þekktu einhvern íslenskann strák sem var eitthvað að þvælast í
Þýskalandi en bjó samt í Danmörku og einn af þeim var alltaf að
hringja í hann og láta okkur tala við hann, þar sem við værum nú
íslenskar líka :D he he Þegar ég var alveg að drepast úr þreytu
rölti ég á pizzastað sem var bara alveg við hliðiná barnum og fékk
mér bara eina bestu pizzu sem ég hef smakkað, alveg ótrúlega góð,
svo góð að ég bara glaðvaknaði og hélt áfram að sötra bjórinn með
stelpunum og nýju vinum okkar.... Auðvitað var svo farið yfir á
Moose og þegar fjörið var búið þar var förinni heitið heim. Bara
ágætis pöbbarölt þar! Daginn eftir lágum við Ingibjörg bara yfir
video með pizzu og kók og nammi auddað líka ;) það var nú einu
sinni laugardagur.... Við ákváðum svo að gerast hollar þegar líða
fór á daginn svo að í kvöldmat fengum við okkur smoothie! ha ha,
eitthvað til að vega upp á móti sukkinu. Ekki leið þó á löngu þar
til við tókum aftur í bjórinn og leiðin lá niður á Kongets Nytorv
þar sem við hittum fyrir nokkra vini Ingu, þau Vigdísi, Lorenzo,
Tomaso og fleiri og saman fórum við á Kulørbar, það vill svo til að
hann er við hliðiná Belgíska barnum með úldna sokka bjórinn! ;) Það
er nebblega þannig á Kulørbar að ef þú kemur kl ellefu þá borgaru
60. dkr til að komast inn og færð bjórglas. Þú getur svo fyllt
endalaust á glasið alveg til eitt um nóttina, eða í tvo tíma :D
nokkuð flott ekki satt, en það er náttúrulega þannig að ef þú
skilur við glasið er þá er ekki meiri frír bjór fyrir þig! :/ Björn
kom svo til okkar og það var dansað smá og drukkinn meiri bjór! Við
ákváðum samt að fara aðeins fyr heim þar sem kvöldið áður hafði
verið meira en nóg. he he Í dag var svo Ísland-Þýskaland þar sem
strákarnir voru ekki alveg í stuðinu, eða eins og danski lýsirinn
sagði þá voru þeir ekki með hjartað í leiknum.... þeir náðu þó að
minka muninn og töpuðu með 5 stiga mun, það var nú ekki svo slæmt
þar sem á tímabili var munurinn 9 stig. En það er kominn matartími
fyrir mig núna, svo að ég segi bara góða nótt, ég vona að þið hafið
líka haft það gott um helgina, við sjáumst síðar......
Íslandsför
föstudaginn 30. mars og verðum á klakanum alveg til 9. apríl í
góðum félagsskap fjölskyldu og vina :) ég hlakka ekkert smá
Furðufólk...
<description>Ég var á æfingu seinasta mánuda... allt var bara eins og venjulega,
kannski óvenjuerfið æfing en það var nú að hluta til vegna þess að
ég var kvefuð og gat valla andað, en annars allt í sama horfi. Við
vorum eitthvað að sprikla þegar ég fer á klósettið til að fá mér
smá vatn að drekka og þá kallar einhver maður á eftir mér og spyr
mig hvort ég sé í karate... Mér fannst það frekar augljóst þar sem
ég var í búningnum en snéri mér við og jánkaði, sá þá að það var
einhver kona með honum í eftirdragi og saman litu þau nú ekkert vel
út, ég hafði nú samt ekki beint tíma til að staldra við og spjalla
svo hélt því bara áfram. Þá kallar hann aftur á eftir mér og spyr
mig í þetta skiptið hvaða belti ég sé með! Það var nú ennþá
augljósara þar sem ég var með grænt belti vafið um mig miðja! Það
var nú alveg augljóst að þau hjónakornin eða hvað sem þau voru,
voru vel í því og ég hafði ekki beint áhuga á að tala við þau. En
já ég fer á klósettið án þess að láta þau trufla mig meira og fór
svo bara aftur inn á æfingu. Nei nei, hver haldið þið að hafi þá
verið komin inn í salinn, önnur en þau skötuhjúin. Þau stóðu þarna
og störðu á fólkið, einn svartbeltingurinn kom að þeim og kallinn
byrjar að tala um það hvað karate hljóti að vera erfitt sport en
hvað hann sé nú samt góður í íþróttum sjálfur og bla bla bla,
eitthvað hélt hann áfram á þessum nótum.... Við ætluðum samt ekkert
að láta þetta hafa nein áhrif á æfinguna og héldum bara áfram að
hoppa og skoppa, þau færu alveg örugglega að koma sér í burtu!
Þegar voru liðnar alla vega fimm mínútur, og þau stóðu ennþá þarna
steinrunninn, sötrandi á bjórnum leist fólki ekki lengur á þetta,
það var frekar truflandi félagsskapurinn skal ég segja ykkur voru
þau beðin um að yfirgefa plaise-ið, þay létu nú aðeins hafa fyrir
sér en eftir smá umræðu héldu þau á braut og létu okkur um
æfingarnar.... Þetta var held ég hápunktur æfingarinnar, skemmtileg
tilbreyting alveg en ekki óskað eftir því aftur! :) Ágætis fólk
alveg, hýrt og skemmtilegt :P
Hver elskar ekki hafragraut? :)
<description>ummmm ég elska hafragraut! :) ég var að koma af æfingu og oftast
fynnst mér ekki gott að borða heitann mat eftir æfingu, vil frekar
eitthvað kallt en maður stenst bara ekki góðann hafragraut með
kanilsykri og rúsínum :P Í febrúar fer ég til Beggu frænku í smá
helgarheimsókn (er það ekki í lagi Begga) nei djók, mér er sko
boðið! :D En það verður alla vega svaka fjör að fá að hitta þessa
sætu famelíu aftur :D Reyndar ætla ég að passa fyrir Beggu og
Stebba þar sem þau eru að fara á þorrablót að djamma og djúsa, he
he Vá ég er allt of þreytt fyrir þetta bull núna..... ætla að fara
og leggjast einhvers staðar útaf :D Góða nótt gott fólk :*
HUGS!
að gera í heillt ár ef svo vill til að ég komist ekki inn í skólann
(7913) og ég hef ekki komist að miklum niðurstöðum ennþá..
Möguleikarnir eru aðvitað endalausir, ekki mér til mikillar
skemmtunar, en ég vil endilega gera eitthvað sem nýtist mér í
Nýja árið
<description>Já gleðilegt árið gott fólk.... :) Ég eyddi áramótunum mínum hjér
heima í Taastrup með pabba, Önnu, Guffa og Birni og höfðum við það
bara mjög gott. Við fengum íslenskt hangikjöt auðvitað með öllu
tilheyrandi :P ummm og svo var skotið upp flugeldunum :) alltaf
gaman að því Og nú er hversdagsleikinn tekinn við aftur eins og hjá
öllum hinum og verðum við að bíða heillt ár eftir gamaninu! Ég er
byrjuð aftur í karateinu eftir jólafríið, sem er auddað bara gaman
Annar í jólum! :D
<description>Úff þetter búið að vera gott jólafrí... ekki mjög langt en maður er
búinn að fá helling gott að borða, slappa af, fá gjafir og hafa það
gott með fjölskyldunni :) Svo er það bara vinnan á morgun, ég get
ekki sagt að mig hlakki til en það er alltaf gott að gera eitthvað
að viti... fara út úr húsi og fá smá súrefni ef þið skiljið mig! Ég
fékk fullt af flottum pökkum, þar á meðal fyrstu seríuna úr the L
word og hef ég því verið mjög upptekin :P he he Ég sakna samt
stelpnanna minna á íslandinu (og kanarí) og mömmu og krakkanna og
svo auðvitað þín Björn :) Baldvin bróðir pabba og Anna Kristín
frænka mín ætla að koma á morgun og verða í danmörkinni í nokkra
daga svo að það verður gott að sjá smá af þeim! Verð að fara núna g
hjálpa pabba með matinn, elska ykkur öll.. Gleðileg jól
elskurnar!!!
Skild´það vera jólahjól?
<description>Ég fór í bæinn í dag, þ.e.a.s á strikið og þar í kring... ákvað að
kíkja aðeins á lífið og sjá hvort það væri ekki smá jólastemning!
:) og jú það var stemning... það var bara eins og maður væri kominn
til Íslands rétt fyrir jól, s.s. fullt af fólki út um allt að
hlaupa erindi fyrir jólin :) ég endaði á að hitta Jan vin minn og
við fórum á kaffihús. Við fundum mjög kósí stað á hliðargötu við
strikið, heitir Retro og er mjög í samræmi við nafnið! Algjörlega
staður að mínu skapi. Það hagnast ekkert af rekstrinum heldur
rennur allur ágóði til hjálparstarfa, það er fataveslun inná
kaffihúsinu og öll húsgögnin eru gömul, veggfóður á veggjum,
skemmtileg tónlist, chillað staff og bara já, mjög retró og
kósí.... ég held ég hafi fundið kaffihúsið mitt! :D En eftir að
hafa unnið síðan kl sex í morgun og ráfað í bænum til sex um
kvöldið er ég alveg afframkomin af þreytu.... Begga frænka hringdi
svo í mig þegar ég var í lestinni á leiðinni heim og við spjölluðum
aðeins, því miður er ég að vinna milli jóla og nýárs og get því
ekki verið skírnarvottur fyrir þau, sem ég er alveg meira en til í
að vera, en þau ætla að skíra Knút litla þann 28. des. Þess vegna
er hann afi líka að koma á morgun en hann lendir um hádegi og ætlar
svo að kíkka aðeins í heimsókn til okkar og borða kvöldmat og svona
áður en hann verður sóttur og fer til Sönderborgar.... En ég fer
ekki með :( uhuhu En það er ekki neitt að gera við því... ég verð
bara skírnarvottur þegar næsta barn kemur :) he he Er reyndar búin
að fá að vita að það kemur ekki :/ Jæja þetta var allt að sinni, sí
ja leiter!
tatararamm....
hún er..... bloggið vildi ekki save-ast hjá mér og mitt í tilraun
gerði það... svo þegar ég ætlaði að breyta færslunni til að skrifa
það á mánudaginn síðasta, það gekk nú ekki áfallalaust en nógu vel
sér í kvöld, reyndar mun Anna ekki halda mér félagsskap í bjórnum
julefrokost og koma Lóló og fjölskylda til okkar ásamt annari
fjölskyldu sem við þekkjum hérna (mamman þar er frá Færeyjum og
pabbinn danskur) þannig að þetta verður svona samanbland af dönum,
ég er búin að liggja í einhverri flensu!! :( Allt að verða búið
Það var einu sinni lítil íslensk prinsessa sem bjó í Danmörku....
<description>og hún hét Gulla :)